7.12.2011 | 10:05
Allir skynsamir þingmenn felli hin óskynsamlegu og illa unnin fjárlög fyrir næsta ár:
Frekara niðurskurður til lífnauðsynlegra málaflokka, eins og heilbrigðismála, löggæslu og annara björgunarstarfa, eins og t.d. sjúkraflutninga, er ekkert annað en beint tilræði við almannavarnir og almannaheill!!
Landspítalinn, ásamt öðrum sjúkrahúsum og sjúkrastofnunum um land allt, þola ekki frekari niðurskurð!! Með fyrirhuguðum fjárlögum fyrir árið 2012, er verið að leggja líf lifandi manneskja - ekki dauðum hlutum á pappír - í bráða lífshættu. Sama er að segja varðandi löggæslu og önnur björgunarstörf, og þá ekki síst sjúkraflutninga, í tvíþættri merkingu þess orðs, annars vegar með fækkun þeirra; og þótt þeim verði ekki fækkað, mun álag stóraukast á sjúkraflutningamenn og bráðaliða, sem er nú þegar ærið fyrir!! Sama er að segja varðandi álag á allt annað heilbrigðisstarfsfólk!! Hér eru um að ræða ómetanleg, en mjög vanmetin störf!! Verða menn að veikjast alvarlega sjálfir, til að kunna að meta þessi ómetanlegu störf líknar, heilbrigðis- og björgunar?? Þá eru löggæslu- og önnur björgunarstörf einnig vanmetin á mjög ómaklega hátt!!
Ég enda hér með frétt varðandi þessi mál, sem birtust á fréttavef Rúv., þar sem segir orðrétt:
Stjórnarandstaðan hefur gagnrýnt hraðann á afgreiðslu fjárlaganna. Gengið verður til atkvæða um þau síðdegis. Ragnheiður Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að alla framtíðarsýn um fjármögnun ríkisútgjalda skorti. þar sé eins og stjórnin pissi í skóinn sinn með álagningu nýrra skatta.
Lokaumræðu um fjárlagafrumvarp næsta árs lauk á Alþingi á tólfta tímanum í gærkvöld. Stjórnarandstaðan gagnrýndi harðlega hraðann á vinnu við afgreiðslu frumvarpsins og að mörgum spurningum væri enn ósvarað. Fjármálaráðherra sagði í lokaræðu sinni að niðurstaðan væri viðunandi.
Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, telur hraðann á afgreiðslu fjárlaga hafa verið til vansa og hún hefur áhyggjur af heilbrigðismálunum þó að þar hafi verið bætt í. Engu að síður sé alveg ljóst að verulega sé skorið niður til heilbrigðismála.
Það kemur alls staðar niður. Það kemur bæði niður á Landspítalanum, sem er mjög viðkvæmur fyrir frekari niðurskurði. Þar er búið að skera niður um 20% eftir hrun. Þetta kemur líka niður á landsbyggðinni og þetta er okkar helsta áhyggjuefni í augnablikinu.
Ragheiður E. Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir tekjugrunninn fallvaltann. Enn vanti skatttekjur upp á tíu til fimmtán milljarða til að mæta ríkisútgjöldum og eina lausn ríkisstjórnarinnar sé að seilast í vasa skattgreiðenda. Í fjárlagafrumvarpinu birtist engin leið til að auka verðmætasköpun í samfélaginu, þó að vissulega sé verið að leggja á nýja skatta.
Við erum með skattlagningu á lífeyrissjóðina okkar sem dregur úr sparnaði. Það er verið að pissa í skóinn sinn og það er engin sýn til framtíðar þegar kemur að tekjuhlið fjárlaga.
(Rúv. Fyrst birt: 07.12.2011 08:16 GMT, Síðast; uppfært: 07.12.2011 09:01 GMT; áherslubreyting: ÓÞ).
Með vinsemd og virðingu og óskum um alla Guðs blessun.
Ólafur Þórisson, cand. theol.
Meginflokkur: Trúmál og siðferði | Aukaflokkar: Stjórnmál og samfélag, Trúmál, Vefurinn | Breytt s.d. kl. 10:08 | Facebook
Um bloggið
Ólafur Þórisson
Nýjustu færslur
- Nýtt frumvarp Velferðarráðuneytisins gegn ófæddum börnum glæp...
- HUGVEKJA: KRISTIN KÆRLEIKSTRÚ OG MENNINGARARFLEIFÐ ALDANNA:
- SAMRÆMAST FRJÁLSAR FÓSTUREYÐINGAR KRISTINNI KÆRLEIKSTRÚ ALDA...
- HEYRIR FLÓTTAMANNAHJÁLP SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA, NÚ SÖGUNNI TIL?
- MANNVINURINN OG KRISTNIBOÐSLÆKNIRINN ALBERT SCHWEITZER; Í ÁR ...
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.