Færsluflokkur: Löggæsla

SÍFELLDUR NIÐURSKURÐUR TIL ÞEIRRA LYKILSTARFA OG ÞJÓNUSTU, SEM ERU UPP Á LÍF OG DAUÐA HINS ALMENNA BORGARA KOMIN:

    • Ólafur Þórisson deildi tengill.
      www.ruv.is
      Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður fjárlaganefndar, segir að nefndin hafi óskað eftir áliti Ríkisendurskoðunar en það sé liður í átaki nefndarinnar til að auka fjárstjórnarva
      Líkar þetta ·  · Deila · 9. maí kl. 16:32 · 
        • Ólafur Þórisson   Uppsafnaður fjárhagsvandi heilbrigðismála-, löggæslu- og annarra björgunarsarfa, er fyrst og fremst tilkominn vegna fjársveltis núverandi landsstjórnar til þessara lífsnauðsynlegu málaflokka, sem varðar líf og heilsu fárveiks fólks, þ.m.t. fárveikra barna sem og annarra landsmanna, er varðar löggæslu og önnur björgunarstörf, og þá ekki síst Landhelgisgæslunnar.  Forgangsröð núverandi ríkisstjórnar, er með öllu óverjandi, og enginn greinarmunur gerður á eðli viðkomandi starfa og þjónustu.  Hins vegar er engu sparað til, þegar kemur að "gæluverkefnum" landsstjórnarinnar!  Því eru næg skynsemisrök til að  hægt sé að spyrja eftirfarandi spurninga:


          Eru viðkomandi ráðherrar ekki nógu sekir, hvað varðar siðlausan, og í raun glæpsamlegan niðurskurð til þeirrar þjónustu, sem varða almannavarnir og almannaheill???????????????????????????????

          Lokun bráðamótöku á landsbyggðinni sem og skerðing varðandi aðrar bráðamótakanar, og þá ekki síst varðandi Landspítalann (LSH.), varðar ekkert annað en grófa atlögu gegn almannavörnum og almannaheill, auk annars niðurskurðar til heilbrigðis-, löggæslu- og annarrar björgunarstarfsemi!!!!!!!
            


          Á hér að fara að fremja endanlega glæp gegn mannkyni, eða er líf fárveiks fólks sem og annarra landsmanna, svo lítils virði, að breyta verður grunnreglu almennra hegningarlaga frá árinu 1940 sem og grunnreglu eldri laga, þ.m.t.  eldri laga en frá árinu 1874??????????


          .9. maí kl. 16:43 · Líkar þetta
        • Ólafur Þórisson Eða eru varnaðarorð forstjóra LSH. sem og formanns félags lögreglumanna einskis metin??????????????????????????????
          9. maí kl. 16:46 · Líkar þetta
        • Ólafur Þórisson Eða er okkar siðblinda og volaða land orðið að "fasistaríki - glæparíki" , þar sem  skipulögð glæpastarfsemi er sífellt að aukast hér á landi, m.a. mansal og vændi.  Þótt ekki væri nema vegna þessarar hörmulegu þróunar, sem fer m.a. um Vesturlönd, eins og banvænn faraldur, ætti m.a. þvert á móti, að stórefla löggæsluna! Nema við vinnum að því , í okkar siðferðilega dofa og siðblindu, að stórefla glæpsamlega starfsemi!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

          9. maí kl. 16:52 · Líkar þetta

    • l
      www.ruv.is
      Starfsmenn Landspítalans eru nú 45 mönnum færri en þeir voru í upphafi árs. Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir að hins vegar hafi inniliggjandi sjúklingum fjölgað að jaf
      Líkar þetta ·  · Deila · 24. apríl kl. 13:55 · 
        • Ólafur Þórisson 
          Hvar er ráðherraábyrgðin nú, þegar lífi og heilsu fólks, þ.m.t. barna, er stefnt í bráða lífshættu??? Varðar þetta ekki almannavarnir og almannheill??? Þessi ofangreinda aðvörun forstjóra LSH, er mjög alvarleg, og þeir ráðherrar, sem hundsa þessa aðvörun, hljóta að vera sekir fyrir alvarlegri brot, en brot á formreglum! Svívirðileg aðför óstjórnarmanna gegn góðum og heiðarlegum manni, eins og Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, er mjög ómakleg, auk þess að
          stuðla að réttarmorði, varðandi 2. lið fráleitrar ákæru svonefnds
          saksóknara Alþingis; enda var Geir sýknaður af öllum öðrum liðum hinnar fráleitu ákæru! Hafi ósjórnin á Íslandi skömm fyrir! Og er óstjórnin e.t.v. þega orðin sek um refsiverða háttsemi, með lífshættulegum niðurskurði til heilbrigðis- og löggæslumála, sem varðar almannavarnir og almannaheill; og þá einkum gagnavart mjög veiku fólki, þ.m.t. veikum börnum! Þá ætlar óstjórnin að rústa endanlega lífsafkomu fjölda fólks, einkum á landsbyggðinni, með fráleitu 
          stjórnarfrumvarpi varðandi sjávarútvegsmál!
          24. apríl kl. 19:52 · Líkar þetta

    Guð gefi, að við vöknum öll að þyrnirósarsvefni sinnuleysisins, áður en það verði of seint!

    Með óskum um alla Guðs blessun,
    Ólafur Þórisson, cand. theol.



BOÐAÐUR NIÐURSKURÐUR TIL LÖGGÆSLU OG HEILBRIGÐISÞJÓNUST TILRÆÐI VIÐ ALMANNAVARNIR:

Boðaður niðurskurður núverandi stjórnvalda til löggæslu og heilbrigðisþjónustu, er ekkert annað en beint tilræði við líf og öryggi allra landsmanna, og þar með almannavarnir!!  Og þetta er á sama tíma, og landsstjórnin lætur aukafjárveitingu til Landsdóms, í "nornaveiðum" sínum gegn hæstvirtum forsætisráðherra síðustu lýðræðisstjórnar hér á landi!!

Ábyrg og skynsöm forgangsröðun í ríkisfjármálum á krepputímum, er lífsnauðsynleg, samhliða markvissri og skynsamlegri atvinnuuppbyggingu! Guð gefi, að hætt verði við slíkan siðlausan, óskynsamlegan og lífshættulegan niðurskurð varðandi þá þjónustu, sem er upp á líf og dauða komin, að varðveita og skera ekki meira niður til!!!!

Guð blessi Ísland!

Með óskum um alla Guðs blessun,
Ólafur Þórisson, cand. theol.



VARÐVEISLA KRISTINNAR KÆRLEIKSTRÚAR ALDANNA, OG ÁVAXTA OG ARFLEIFÐAR HENNAR, SAMHLIÐA MARKVISSU KRISTNIBOÐI: [ENDURBÆTT GREIN]

I

GUÐFRÆÐI MANNVINARINS OG KRISTNIBOÐSLÆKNISINS ALBERTS SCHWEITZERS Í LJÓSI LÍFSKÖLLUNAR HANS SEM KRISTNIBOÐSLÆKNIS Í LAMBARENE, Í MIÐ-AFRÍKU, ÞAR SEM HANN REISTI SJÚKRAHÚS ÁRIÐ 1913, OG STARFAÐI ÞAR SEM KRISTNIBOÐSLÆKNIR Í RÚMA HÁLFA ÖLD.


Guðfræði mannvinarins og kristniboðslækninn Albert Schweitzers, einkum varðandi guðfræði hans; afmarkað (sérstaklega) við efni og innihald guðfræði hans í riti hans ,,The Question of the Historical Jesus (1954)“: ,,Spurningin um hinn Sögulega Jesú“ (Ævisögur Jesú); og þá sérstaklega í ljósi/samræmi við lífsköllun hans sem kristniboðslæknis. Hægt er að rökstyðja þá fullyrðingun (ályktun) út frá niðurlagsorðum – ályktun – í riti Schweitzers, að hann viðurkenni - játi -að Jesús sé Kristur, Sonur hins lifanda Guðs Föður vors á himnum; viðurkenni (játi) þar með Jesú Krist sem sannan Messías, Son Guðs Föður; viðurkenni (játi) m.ö.o Drottin Jesú Krist sem sannan Guð og sannan mann, Endurlausnarann, sem kemur til vor eins og ókunnur nafnlaus gestur, á sama hátt og Hann kom forðum við bakka vatnsins, Hann kom til þessarra manna, sem vissu ekki hver Hann var. (Albert Schweitzer, 1954, The Quest of yth Historical Jesus, bls. 401). A.m.k er ekki hægt að útiloka þessa rökstuddu fullyrðingu, sem hér er sett fram sem tilgáta/ályktun, út frá niðurlagsorðum – ályktun Alberts Schweitzers sjálfs. ,,Hann segir sömu orðin (við þig og mig): ,,Fylg þú mér!“ Og Hann bendir oss á þau verkefni, sem Hann þarf að leysa á vorum tímum. Hann skipar fyrir.“ (Albert Schweitzer, 1954, The Quest of yth Historical Jesus, bls. 401). Hann bendir oss á og skipar oss fyrir þeim kærleiksverkum, sem Hann kallar oss til í víngarði sínum. ,,Og þeim, sem hlýða honum, vitrum sem fávísum, mun Hann opinbera sig í því, sem þeir fá að reyna í samfélagi Hans af erfiðleikum, átökum, og þrautum og þjáningum, og sem ósegjanlegan leyndardóm munu þeir læra og komast sjálfir að raun um Hver Hann er.“ (Albert Schweitzer, 1954, The Quest of the Historical Jesus, bls. 401). Sjálfur sýndi Schweitzer þennan skilning í verki sem kristniboðslæknir í Lambarene í Mið-Afríku í rúma hálfa öld. Þannig uppljómast / lýkst upp fyrir oss í eftirfylgd við Drottin Jesú Krist, að Hann er Drottinn vor og Frelsari, í því/þeim köllunarhlutverkum, sem Hann hefur fyrirhugað oss til eflingar Ríki Hans, konungar kongunanna, konungar kærleikans, þar með þeirrar kærleiksþjónustu, að fylgja Honum, þeir er játast Honum af hjarta sem Drottni sínum og Frelsara, til starfa í víngarði Hans – að efla Ríki Hans! Kristniboðið er hér grundvallarariði (rauður þráður) bæði í guðfræði Schweitzers og lífsköllun hans sem kristniboðslæknis! Áherlsan hjá Schweitzer, að Jesús skipar fyrir, er í beinu og rökrænu samhengi við kristniboðsskipunina sjálfa, einkum í Matteusarguðspjalli, 28. Kapítula, vers 18-20.
Ályktun: Kristniboðið er hér grundvallaratriði; kristin kærleikstrú aldanna til handa öllum, nær sem fjær. Kristniboðið er hér, eins og fyrr segir, grundvallaratriði, bæði í guðfræði Alberts Schweitzers og lífsköllun hans sem kristniboðslæknis. Kristniboðsstarf Alberts Schweitzers. Hér er um ómetanlega fjársjóði að ræða, sem mölur og ryð fær aldrei grandað; væri það mjög verðugt rannsóknarverkefni, einkum innan guðfræðinnar, að rannsaka og kafa dýpra í hina djúphugsuðu guðfræði Alberts Schweitzers, og þá í órjúfanlegu samhengi/samræmi við kærleiksverk hans sem kristniboðslæknis, í Lambarene í Mið-Afríku, þar sem hann reisti sjúkrahús árið 1913, og starfaði þar sem kristniboðslæknir í rúma hálfa öld.
Loks er að leggja áherslu á órjúfanlegt samhengi kristniboðsins og kristilegrar líknarþjónustu (og í raun menntunar einnig), og í órofa samhengi við kristniboðið. Hægt er að rökstyðja það nánar með ályktun varðandi tilgátu (fullyrðingu) og/eða ályktun Schweitzers sjálfs, í niðurlagsorðum rits síns, um Ævisögur Jesú. Öll áherslan hér er hins vegar á lífsköllun og guðfræði mannvinarins og kristniboðslæknisins Alberts Schweitzers; kristniboðið er þar grundvallaratriði (rauður þráður), sem fyrr segir, m.ö.o. að hlýða Honum, sem kallar oss til fylgdar við sig, eins og forðum daga, og skipar oss fyrir. ,,Hann segir sömu orðin (við þig og mig): ,,Fylg þú mér!“ Og Hann bendir oss á þau verkefni, sem Hann þarf að leysa á vorum tímum. Hann skipar fyrir.“ (Albert Schweitzer, 1954, The Quest of yth Historical Jesus, bls. 401). Hann bendir oss á og skipar oss fyrir þeim kærleiksverkum, sem Hann kallar oss til í víngarði sínum. ,,Og þeim, sem hlýða honum, vitrum sem fávísum, mun Hann opinbera sig í því, sem þeir fá að reyna í samfélagi Hans af erfiðleikum, átökum, og þrautum og þjáningum, og sem ósegjanlegan leyndardóm munu þeir læra og komast sjálfir að raun um Hver Hann er.“ (Albert Schweitzer, 1954, The Quest of the Historical Jesus, bls. 401). Sjálfur sýndi Schweitzer þennan skilning í verki sem kristniboðslæknir í Lambarene í Mið-Afríku í rúma hálfa öld, það sannar sagan. Áherlsan hjá Schweitzer, að Jesús skipar fyrir, er í beinu og rökrænu samhengi við kristniboðsskipunina sjálfa, einkum í Matteusarguðspjalli, 28. kapítula, vers 18-20. Þessi áhersla hjá Schweitzer kemur skýrlega fram í lífsköllun hans í Lambarene, í Mið-Afríku, þar sem hann reisti sjúkrahús árið 1913, og starfaði þar sem kristniboðslæknir í rúma hálfa öld, sem sagan sannar einnig: Sterkustu rök fyrrnefndrar ályktunar, og er í órofa samhengi við fyrrnefnd ályktunarorð Schweitzers sjálfs, í niðurlagi fyrrnefnds rits síns!

II

VARÐVEISLA KRISTINNAR TRÚAR OG SIÐFERÐIS SEM OG MARKVISST KRISTNIBOÐ, ER EINA LEIÐIN TIL UPPBYGGINGAR OG VARÐVEISLU KRISTILEGS MANNFÉLAGS.

Mannfélag vort hefur gengið í gegnum ótrúlegar raunir, bæði fyrr og nú. Ekkert hefur hjálpað sem hin bjargfasta trú aldanna, sem grundvallast á bjarginu eina sanna, Drottni Jesú Kristi. Og af hafa leitt ávextir og arfleifð þeirrar bjargföstu sáluhjálplegu trúar, ekki síst varðandi ummönnun sjúkra og þar með björgunar mannslífa, líknarþjónustunnar sem og uppeldis og menntunar barna og unglinga, sem hefur að leiðarljósi þessa bjargföstu kærleikstrú aldanna, byggða á bjargi aldanna, konungi konugnanna, konungi kærleikans, Drottni Jesú Kristi. Þá hefur fjölskyldan og hjónabandið verið hyrningarsteinn hins kristna mannfélags, með Heilaga Maríu Guðs móður og hina Heilögu fjölskyldu - hina bjargföstu kristnu kærleikstrú aldanna, að leiðarljósi, byggða á Drottni Jesú Kristi. E.t.v finnst einhverjum auðveldara að byggja líf sitt á sandi tíðarandanns einum saman, og afneita guðlegri forsjá. Sá hinn sami er á mikum villigötum; upplausn og miskunnarleysi hins guðlausa mannfélags, hefur sagan sannað, fyrr og nú. Líf í og með Drottni vorum Jesú Kristi, þarf alls ekki að vera auðvelt líf eða líferni, og krefst sjálfsafneitunar og fórna, að fljóta ekki með tíðarandunum, sem gæti virst vera auðvelt líf eða líferni, en skilar þess minna, er upp er staðið, andstætt því lífi eða líferni, sem byggt er á hinu eina sanna bjargi aldanna, Drottni Jesú Kristi. Mikilvægi hlutverks húsmóðurinnar er þar ómetanlegt, enda ómetanlegt að koma ekki að tómu húsi, heima, að loknum skóladegi í barnaskóla, eins og margir geta, og hafa vitnað um. Sama má segja um mikilvægi hlutverks ömmunnar og afans. Guð gefi, að þessi kristnu lífsgildi, ásamt fleiri kristilegum lífsgildum, vaxi ásmegin í mannfélaginu á nýjan leik. Gleymum hér heldur aldrei hyrningarstörum mannúðar, líknar og björgunar mannslífa, löggæslu og björgun mannsífa, sem varða ekki síst almannavarnir, og komið hefur sérstaklega fram í náttúrhamförum sl. vikna sem og jarðvísindamönnum og fréttamönnum og fleiri, sem einnig hafa unnið ómetanlegt starf, ekki síst á þessum hamfaratímum.
Guðleysið veður nú um mannfélag vort, eins og faraldur, með allt sitt miskunnarleysi og siðleysi, skreytt ýmsum innihaldssnauðum fallegum orðum, eins og t.d. ,,lýðræði“, eða ,,jafnrétti“, en hvernig er það ,,jafnrétti, sem nær t.d. ekki yfir líf hins ófædda barns; grundvallarrétturinn og þar með grundvallarmannréttindi til lífsins er virt að vettugi, og syndin gerð að einhverskonar ,,mannréttindum". Er hér e.t.v. um að ræða syndina gegn Heilögum Anda, sem aldrei verður fyrirgefin? Mannfélag vort virðist vera orðið að kristniboðsakri, hefur e.t.v. orðið það fyrr, en kemur nú e.t.v. betur í ljós eftir efnahagshrunið mikla sl. haust, sem bitnað hefur harðast á þeim, sem síst skyldi, sem varð, vegna þess að of mikið var haft að leiðarljósi sá fjársjóður, sem mölur og ryð fær grandað, í stað þess að hafa meira að leiðarljósi þann fjársjóð, sem mölur og ryð fær aldrei grandað, byggt á hinu eina sanna bjargi aldanna, Drottni Jesú Kristi. Og guðlaus marxísk hugmyndafræði, er hér heldur engin lausn, sem sagan hefur einnig sannað.
Kristniboðið er hér grundvallaratriði, nær sem fjær, og er í órofa samhengi við alla kristilega uppeldis, - hjálpar,- og líknarstarfsemi. Rofni það samhengi, er voðinn vís, eins og komið hefur á daginn, jafnvel meðal kristinna einstaklinga, sem vegna tíðarandans í dag, hafa farið að greina of mikið á milli kristniboðsins og kristilegrar hjálpar- og líknarstarfsemi. Í raun sannar vitnisburður sögunnar þetta, ekki síst í kristniboði fyrri tíma og sl. aldar, og má nefna fögur dæmi þar um, eins og kristniboðsstarf mannvinarins Alberts Schweitzer, sem rætt er hér sérstaklega í I. kafla, hér að framan, sem reisti sjúkrahús í Lambarene í Mið-Afríku, árið 1913, og starfaði þar sem kristniboðslæknir í rúma hálfa öld. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Krisinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga). Sama má nefna varðandi mannvininn systur Móður Theresu, sem starfaði lengst af ævi sinnar í kristinni líknarreglu meðal sinna minnstu meðbræðra og systra í Indlandi, OG mannvininn systur Önnu Maríu, sem miðlaði hinum sjúku og aðframkomnu, freslandi og líknandi náð og miskunn Drottins Jesú Krists. Hér á landi má nefna kristilegt líknarstarf Kaþólsku systranna, sem reistu m.a. sjúkrahús í Reykajvík, upp úr aldamótunum 1900, St. Jósefsspítala, Landakoti sem og í Hafnarfirði, og fleiri sjúkrahús, m.a. í Stykkishólmi, og var í órofa samhengi Kaþólska kristniboðsins. Hér á landi má einng nefna mannvininn og æskulýðsleiðtogann Bjarna Eyjólfsson, sem m.a. sat í fjóra áratugi í stjórn KFUM, og var rúma þrjá áratugi í starfi og forystu í málefnum Sambands Íslenskra kristniboðsfélaga. (Árni Sigurjónsson, 1988, Bjarni Eyjólfsson, Úr minningasafni, bls. 8). Þessa er ekki síst að minnast í tilefni af því, að í ár eru liðin 110 ár frá stofnun KFUM og KFUK á Íslandi. Og fleira mætti vissulega nefna, eins og ómetanlegt starf Hjálpræðishersins, Samhjálpar, ABC-hjálparstarfs, o.s.frv. Guði sé lof, þá eru enn þann dag í dag kristileg uppeldis, -hjálpar,- og líknarsamtök, þar sem kristniboðið er haft að leiðarljósi, þar sem órofa samhengi er á milli kristniboðsins og kristilegra kærleiksstarfa - líknarstarfa -, byggð á Drottni Jesú Kristi, Endurlausnara vorum og Frelsara. Hér var og er bænin grundvöllurinn, eða öllu heldur lykillinn að frelsandi og líknandi náð og miskunn Drottins Jesú Krists.

Guð blessi alla vora minnstu meðbræður og systur, nær sem fjær. Guð blessi Ísland, og Íslenska þjóð, og þá sérstaklega alla þá, sem búa og dvelja í nánd við Eyjafjallajökul. Biðjum almáttugan Guð, að koma með alla sína blessun og miskunnsemd, sérstaklega varðandi þessar óhugnanlegu náttúruhamfarir, og vernda hvert mannslíf, og hindra að slys verið á fólki; og einnig að vernda öll dýrin.

Ég vil loks sérstaklega votta öllum Pólverjum mínar dýpstu samúðarkveðjur, vegna hins hörmulega og sviplega flugslyss, þar sem um eitt hundrað manns fórust. Guð blessi minningu hvers og eins. Sama er að segja varðandi Kínverksu þjóðina, á sorglegum, og mannskæðum náttúrhamförum öflugs jarðskjalfta; biðjum að sem allra flestir bjargist úr rústunum, eftir þessar sorglegu náttúruhamfarir. Guð allrar miskunnsemdar og huggunnar, miskunni, huggi og blessi alla, og þá ekki síst aðstandendur, sem eiga nú um sárt að binda. Orð eru fátæk, í allri sorg, en í áramótasálmi séra Valdimars Briem, segir m.a.:

Ó, gef þú oss, Drottinn, enn gleðilegt ár
og góðar og blessaðr tíðir,
gef himneska dögg gegnum harmanna tár,
gef himneskan frið fyrir lausnarans sár
og eilífan unað um síðir.

Sálmabók 1886 – Valdimar Briem. (Sálmabók, 1972, bls. 98).

Guð blessi sérstaklega Ísland, Pólland og Kína. Guð blessi einnig alla aðra, einkum þá, sem eiga um sárt að binda, nær sem fjær.

Með óskum um Guðs blessun, líkn, huggun og miskunnsemd Drottins.

Með vinsemd og virðingu,

Ólafur Þórisson, cand. theol.

Höfundur er með embættispróf í guðfræði frá HÍ., og er með rétt til embættisgengis til prestsþjónustu.


Um bloggið

Ólafur Þórisson

Höfundur

Ólafur Þórisson
Ólafur Þórisson
Höfundur er með embættispróf í guðfræði frá HÍ., og er með rétt til embættisgengis til prestsþjónustu
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband