ORÐ KONUNGAR KÆRLEIKANS, DROTTINS JESÚ KRISTS, UM TAKMARKALAUSA MISKUNNSEMD DROTTINS, OG ARFLEIFÐAR OG ÁVAXTA ÞEIRRA, Í KRISTILEGU MANNFÉLAGI, ANDSTÆTT MISKUNNARLEYSI GUÐLAUSS MANNFÉLAGS: [ENDURBÆTT SAMANTEKT (ÚTDRÁTTUR) ÚR FYRRI GREIN MINNI]

I
VEGIÐ ÓMAKLEGA AÐ HYRNINGARSTÉTTUM OG HYRNINGARSTÖRFUM KRISTILEGS SIÐAÐS MANNFÉLAGS, EINKUM LÍKNAR, MISKUNNAR, LÖGGÆSLU OG BJÖRGUNAR, O.S.FRV. SEM OG HYRNINGARSTÉTTUM HINS HEILAGA HJÓNABANDS, SAMKVÆMT HEILÖGU GUÐS ORÐI OG SKIKKAN SKAPARANS – GRUNDVALLAREINGINGU KRISTILEGRAR FJÖLSYLDU OG HEIMILIS, - AF HÁLFU ÓBILGJARNRA STJÓRNVALDA GUÐLAUSRAR OG SIÐLAUSRAR MARXÍSKRAR FORRÆÐISHYGGJU:

1 Störf líkna, miskunnar, björgunar, og uppeldis og fræðslu, eru vanmetin, á mjög ómaklegan hátt, af hálfu guðlausrar marxískrar forræðishyggju „hins pólitíska rétttrúnaðar“ - göfug hyrningarstörf kristilegs siðaðs mannfélags, og samanstanda einkum af hefðbundnum kvennastörfum, einkum hjúkrunar, líknar, ummönnunar, uppeldis- og fræðslu, auk starfa lækna, presta, bráðaliða, sjúkraflutningarmanna, lögreglumanna, auk annarra björgunarsveitarmanna. Þessi göfugu hyrningarstörf, eru dýrmæt dæmi um þann fjársjóð, sem mölur og ryð fær aldrei grandað, andstætt framagirnd forræðishyggjunnar og „auðæfaoflætisins“. Hvílík mannfyrirlitning og í raun ekki síður kvenfyrirlitning, því konur eru einnig menn!
Enda bitnar mannfyrirlitning marxískrar forræðishyggju, ekki síst á svívirðilegan hátt á mæðrum og verðandi mæðrum sem og mæðravernd og ungbarnaeftirliti! Mannréttindi mæðra og barna þeirra sem og feðra, eru fótum troðin, á hinn svívirðilegasta hátt þeirrar grimmu fasísku forræðishyggju, sem metur mannslífið einskis! Því miður komu slík dæmi fram í Kastljósi Sjónvarps, fimmtudagskvöldið, þann 4. mars sl. Að ekki sé talað um þann glæp, að úthýsa fárveiku barni af gjörgæsludeild Barnaspítala Hringsins, og kom fram í Íslandi í dag Stöðvar tvö, nú nýverið!

Andstæða þessa miskunnarleysins, er ekki síst dugnaður þeirra kvenna, sem auk hjúkrunarstarfa sem og annarra starfa, hafa stofnað fyrirtæki varðandi heilbrigðisþjónustu og heilsueflingu, m.a. innan fyrirtækja. Hér er ekki síður um göfug störf heilsueflingar að ræða, og að fyrirbyggja veikindi, sem skilar sér margfallt til mannfélagsins, á margþættan hátt, í dýpstu kærleikans merkingu þess orðs!

2 Guð stofnaði hjónastéttina sem grundvallarhyrningarstéttar kristilegs og siðaðs mannfélags. Guðlausir jaðarhópar vinna markvisstað því, að skapa óeiningu og sundrungu og óbrúanlegar gjáar milli þessarrar hyrningarstéttar – hjónastéttarinnar kristilegs siðaðs mannfélags aldanna! Hvað þá að líf hins ófædda barns sé mikils metið, eða hitt þó heldur. Syndin er hér gerð að einhverskonar „mannréttindum“ – mannréttindabrot í nafni „mannréttinda“, og gengur gróflega í berhögg við Heilagt Guðs Orðs og Skikkan Skaparans. [Til að fyrirbyggja allan misskilngin, er hér hins vegar alls ekki verið að dæma þá einstaklionga, sem ekki tilheyra hjónaastéeinni, og geta vissulega framgengið samkvæmt þeirri köllun Guðs, í Víngarði Drottins, og enginn skyldi annan dæma]. Er hér e.t.v. um að ræða syndina gegn Heilögum Anda, sem aldrei verður fyrirgefin? Eða sú svívirðilega sundrung og ofbeldi, sem bitnar ekki síst á konum og börnum, sem hefur stóraukist með tilkomu þessarra jaðarhópa miskunnarleysisins, auk almenns fráhvars frá kristinni kærleikstrú og sið aldanna! Þessir djöfullegu jaðarhópar andlegs dauða, eru óhugnalega skyldir djöfullegum hópum Talibana, þar sem hámark miskunnarleysis og svívirðu, sem beinist ekki síst gagnvart konum og börnum, er í algleymingi!

3 Mannvinurinn og kristniboðslæknirinn, Alberts Schweitzers, kemst m.a. svo að orði:

,,Framtíð mannkyns veltur á því, að sérhver maður, hvert sem starf hans er, leitist við að sýna, hvað sönn mennska er. Það sem menn láta ógjört í þessu efni, er vanræksla, en ekki örlög." (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 274).

II
EILÍFGILD ORÐ KONUNGAR KÆRLEIKANS, GRUNDVALLARÞÁTTA HEILAGS GUÐS ORÐS, SEM ÁRRÉTTAR ENN TAKMARKALAUSA MISKUNNSEMD DROTTRINS, GUÐS FÖÐUR, HJÁ KONUNGI KONUNGANNA, DROTTINS JESÚ KRITS, Í EININGU HEILAGS ANDA; HÖFUNDAR ALLS LÍFS OG EILÍFGILDRAR MISKUNNSEMDAR ALKÆRLEIKA ALMÁTTUGS GUÐS Í DROTTNI JESÚ KRISTI, FRELSARA VORUM OG ENDURLAUSNARA, Í KRAFTI HEILAGS ANDA, ANDSTÆTT MISKUNNARLEYSI GUÐLAUSS MANNFÉLAGS:

Í Matteusarguðspjalli, 25. kapítula, versum 34-36 og 40, stendur ritað:

,,... Og þá mun konungurinn segja við þá til hægri: ,Komið þér, hinir blessuðu föður míns, og takið að erfð ríkið, sem yður var búið frá grundvöllun heims. Því hungraður var ég, og þér gáfuð mér að eta, þyrstur var ég, og þér gáfuð mér að drekka, gestur var ég, og þér hýstuð mig, nakinn og þér klædduð mig, sjúkur og þér vitjuðuð mín, í fangelsi var ég, og þér komuð til mín.'
,,...Konungurinn mun þá svara þeim: ,Sannlega segi ég yður, það allt, sem þér gjörðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gjört mér.'" (Biblían - Heilög Ritning - Gamla testamentið og Nýja testamentið, 1981, bls. 34-35).

Seinni hópurinn, sem miskunnarverkunum sleppti, mun þá svara: ,,,Herra, hvenær sáum vér þig hungraðan eða þyrstan, gestkominn eða nakinn, sjúkan eða í fangelsi, og hjálpuðum þér ekki?‘ Hann mun þá svara þeim: ,Sannlega segi ég yður: Það allt sem þér gjörðuð ekki einum hinna minnstu bræðra minna, það hafið þér ekki heldur gjört mér.‘ Og þeir munu fara til eilífrar refsingar, en hinir réttlátu til eilífs lífs." (Biblían - Heilög Ritning - Gamla testamentið og Nýja testamentið, 1981, bls. 35).

Hér kemur fyrir Gríska orðið *[dinkov´nsamév“] hjálpuðum, sem lýsir enn dýpri merkingu orðsins vitjuðuð *[épeskéyasðé] [heimsókn], þótt sú merking sé jafnframt í fullu gildi, í sem víðustu samhengi. Enda er engin hjálp, án vitjunar“. En jafnframt enn dýpra en eingöngu heimsókn, með fullri virðingu fyrir heimsókninni sem slíkri, sem jafnframt er óhjákvæmilega í fullu samhengi ofangreinds; þ.e. hjálp, athöfn, sem er hér m.a. upp á líf og dauða hins sjúka komin. Sama varðar síðan alla aðra, sem líða, og er ekki hjálpað, fangans, hins hungraða, þyrsta, gestsins, o.s.frv. *([Hér verður því miður óhjákvæmilega að notast við Íslenska stafi, í stað Grískra, en mögulegt er að bera þá fyllilega saman við hina Grísku stafi í Gríska Nýjatestamentinu: Novum Testamentum Greace, bls. 74**] Novum Testamentum Graece, 1983, bls. 74**).

Erum vér e.t.v. komin að þeirri synd, sem telst syndin gegn Heilögum Anda, og verður aldrei fyrirgefin? Og vér erum öll samsek um, ekki aðeins stjórnmálamennirnir?
Og e.t.v. sæta stjórnmálamennirnir ofríkis erlendra stofnanana, eins og t.d. Alþjóða gjaldeyrissjóðsins (AGS)? Lífi og heilsu fárveiks fólks, er stefnt hér í bráðan voða, og afleiðingarnar verða aldrei, aldrei metnar til fjár, hvort sem er hér á landi eða annars stðar! Glæpur gegn mannkyni, og ekki aðeins hér á landi? Og vér erum öll samsek hér, enda endurspegla stjórnvöld á hverjum tíma, vilja almennings, að minnsta kosti, að verulegu leiti. Að minnsta kosti, voru háttsettir nasistar Þriðja ríkis Hitlers, m.a. dæmdir fyrir þann þátt stríðsglæpa, að hindra og meina stórum hópi fólks læknisaðstoðar, fyrir utan alla aðra svívirðilega stríðsglæpi, í hinum svonefndu Nurnberg réttarhöldun, að lokinni seinni heimsstyrjöldinni, sem sagan sannar því miður.

Hér er um lykilatriði arfleifðar og ávaxtar kristinnar kærleikstrúar og siðar aldanna, sem ótaldir sannir lærisveinar Jesú Krists bæði hafa gert og unnið að, að gert yrði, á öllum öldum, þ.m.t. í dag. En þegar þessum kristna lífsskilningi kristninnar hnignar, er ekki von á góðu, og hefur að sönnu komið fram á öllum öldum, en ekki síður í allri afkristnun og afsiðun grimmdar skeytingarleysis nútímans, sem sagan hefur einnig því miður sannað, og sannar enn þann dag í dag.

Siðlaus og siðblindur - lífshættulegur - niðurskurður, andstætt hugsjón og störfum líknar, miskunnsemdar og björgunar, eins af dýrstu ávöxtum kristinnar kærleikstrúar og siðar aldanna! Og kemur út á eitt, hvert hið eiginlega rekstarform líknar og björgaunar er – ákveðin grunnþjónusta verður að vera á vegum hins opinbera, en meira þarf til, svo fremi sem miðað að er miskunnsemd, líknsemi og björgun í ljósi þeirra kristilegu mannúðarsjónarmiða, með hina kristnu kærleikstrú og sið aldanna að leiðarljósi, grundvallað á konungi konunganna, konungi kærleikans, Drottins Jesú Krists, þess alkærleika, þar sem Guð afklæddist dýrð himnanna, gjörðist maður, á hinum fyrstu Jólum, vor vegna, dó á krossi þeim dauða, sem beið vor, vegna synda vorra, og fullnaði sigur sinn yfir dauðanum með upprisu sinni, á hinum fyrstu Páskum, og úthellti sínum Heilaga Anda yfir kirkju sína, á hinni fyrstu Hvítasunnu.
Drottin vor Jesús Kristur, bar allar syndir vorar, sjúkdóma og annað böl, upp á krossinn, til þess að vér skyldum frelsast og eiga líf í fullum gnægtum, andlega sem veraldlega, þannig að enginn liði nokkurn skort, og taldi aldrei eftir að frelsa og lækna, og veita öllum þann eilífgilda fjársjóð, sem mölur og ryð fær aldrei eytt, en aldrei í ljósi auðæfaoflætisins, sem varðar hins vegar þann fjátsjóð, sem mölur og ryð fær eytt, og komið hefur skýrlega fram í heimskreppunni sem og öllum heimskreppum, þar sem hins vegar ávöxtur botnlauss forarpytts græðgisvæðingar er höfð að leiðarljósi; slíkt hrynur, fyrr eða síðar, og bitnar síðan harðast á þeum, sem síst skyldi, og litla sem enga sök eiga á ástandinu, eins og komið hefur á daginn á græðgisvæðingu auðæfaoflætisins, sem byggt er á forarpytti botnlausrar græðgi, þar sem Guði er gleymt; munum í þessu samhengi dæmisögu Jesú um ríka bóndann, sem stækkaði og stækkaði hlöður sínar, en gleymdi Guði, og fyrirgjörði þar með sálu sinni.
Þá eru guðlausar helstefnur engu minni óvinur kristinnar kærleikstrúar aldanna, helstefnur guðlausrar heimshyggju, skreyttar oft fögrum orðum jafnréttis; en undarlegt er það jafnrétti“, sem nær ekki lengra og dýpra en það, að ná ekki yfir allt líf mannsins, þ.m.t. hins ófædda barns, en lífið er friðheilagt frá getnaði, samkvæmt Heilögu Guðs Orði og Skikkan Skaparans; [hversu mikið mætti spara í heilbrigðismálunum varðandi það að afleggja svo til fóstureyðingar (hér er fé notað til að deyða líf, í stað þess að bjarga því, og veita því hins vegar jafnframt alla mögulega líkn og hjálp, sem raunverulega er möguleg; ekki samkvæmt geðþóttaákvörðun misvitra stjórnmálamanna sem og annarra - en nýta það fé þvert á móti þess heldur til bjargar og líknar veiku fólki, að ekki sé talað um mæður og börn þeirra] og í dýpstu kærleikans merkingu þess orðs, alls er anda dregur, sbr. siðfræði mannvinarins og kristniboðslæknisins, Alberts Schweitzers: Lotning fyrir lífinu. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 143-147, 268).

,,Hugtakið lotning fyrir lífinu“ hefur öll skilyrði, segir Schweitzer, til að vera grundvöllur einfaldrar lífsskoðunar, sem allir geta skilið, en er um leið í samræmi við kröfur rökrænnar huhsunar og samkvæm kærleikskenningu Jesú. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 268).

Útlegging: Það, sem þér gjörðuð ekki minna minnstu meðbræðra og systra – það hafið þér heldur ekki gjört mér. Hvað þá varðandi þá, sem m.a. gjöra sínum minnstu meðbræðrum og systrum, t.d. með lífshættulegum og siðlausum niðurskurði, til lífsnauðsynlegra líknar- og björgunarstarfa, sem óhjákvæmilega og fyrirsjánlega munu kosta mörg mannslíf saklauss fólks, veikra barna sem annarra, nær sem fjær; það er því miður ekki spurningin, hvort einhverjir einstaklingar hljóti þjáningarfullan dauðdaga af niðurskurðinum, heldur hversu mörg fórnarlömb niðurskurðarins verða, a.m.k. ef haldið verður áfram á miskunnarlausri ógæfubraut siðblinds niðurskurðar, varðandi lífsnauðsynleg líknar- og björgunarstörf. þ.m.t. líifnauðsynlegrar þróunarhjálpar?

Á sama tíma vinna ótaldir hér á landi og um víða veröld, að störfum líknar, miskunnar, björgunar, uppeldis, menntunnar- og sálgæslu – líknar- og heilbrigðisstéttir, löggæslu- og björgunarsveitir, og önnur örygisstörf, eins pg starf loftskeytamanna og fl., uppeldis- og menntunarstéttir, prestar/forstöðumenn, o.s.frv., eins og ljós í myrkrinu, nær sem fjær! Og það munar svo sannarlega um hvern þann einstakling, sem þannig fær líkn, miskunn og hjálp, nær sem fjær, mitt í miskunnarlausum heiminum.

Og einnig á sama tíma fara kristniboðar, m.a. héðan frá Íslandi, sem sjálfboðaliðar í líknar, uppeldsis- og menntunarstörf, til Afríku, m.a. Keníu og Eþíópíu.

Þetta sannar einnig, að Heilagt Guðs Orð, grundvallað á Orðinu holdi klæddu, Drottni Jesú Kristi, talar alltaf inn í allar aðstæður lífsins, og það á öllum tímum.

Kristniboðarnir (sjálfboðaliðarnir) hafa séð þessa skyldu sína, [ekki síst varðandi líknarþjónustuna og menntunina, og þá ekki síst menntun barna] á öllum öldum, nær sem fjær, og gera enn, og unnuð ómetanleg kristileg kærleiksverk, á þessum vettvangi, líknað hinum sjúku og uppfrætt þá um Jesú Krists, eins og mannvinurinn og kristniboðslæknirinn Albert Schweitzer, sem reisti sjúkrahús árið 1913, í Lambarene í Mið-Afríku, og starfaði þar sem kristniboðslæknir í rúma hálfa öld, sem sagan sannar einnig, enda starfaði Schweitzer á kristniboðsstöð Franskra Mótmælenda í Lambarene, eða í nágrenni við hana, og hafði náin kynni og samvinnu við kristniboða, bæði Rómverks-Kaþólska og Evangelíska. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 250).

Þannig lýsti Schweitzer kynnum sínum, af kristniboðinu, eftir þriggja ára veru í Lambarene, og fórust m.a. orð á þessa leið:

,,Ég ber einlæga lotningu fyrir því starfi, sem amerískir kristniboðar hófu hér og franskir kristniboðar hafa haldið áfram. Þeir hafa mótað hugsun innlendra manna, í mannlegum og kristilegum skilningi, á þann veg, að það myndi sannfæra jafnvel ramma andstæðinga kristniboðs um það, að kenning Jesú megnar mikið gagnvart frumstæðum mönnum.“ (Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 250).

Schweitzer hefur lagt mikla áherslu á að minna á það, sem kristniboðið hefur gert til líknar og hjálpar Afríkumönnum. Þeir hafa bætt líkamleg mein innlendra og kennt þeim hagnýta hluti, auk þess, sem þeir hafa uppfrætt þá um Jesúm Krist. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 250). Þetta sannreyndi Albert Schweitzer í lífsköllunarstarfi sínu sem kristniboðslæknir, auk þess að hafa guðsþjónustu og prédika á hverjum sunnudegi, og öðrum helgidögum kristninnar. [(Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga; Albert Schweitzer, 1935, My Life and Thought)].

,,,,Hver, sem kynnist hugarheimi frumstæðra manna,“ skrifar Schweitzer, ,,og þekkir óttann, hræðsluátandið, sem þeir eru í ... getur aldrei framar efast um, að oss beri að gera allt, sem unnt er, til þess að losa þá við þessi hindurvitni. Og enn segir Schweitzer: ,,Evrópumenn munu aldrei geta skilið til fulls, hversu skelfileg tilveran er þessum vesalings mönnum...Þeir menn einir, sem hafa séð þessar hörmungar í nærsýn, skilja, að það er skylda vor að flytja frumstæðum nýja lífsskoðun, er losi þá við þá hugaróra, sem gera þeim lífið svo kvalafullt. Í þessu tilliti myndu jafnvel stækustu efasemdamenn verða vinir kristniboðsins, ef þeir kynntust málavöxtum.
,,Kristindómurinn leysir þessa menn úr viðjum óttans. ,,Þeir vita síðan, að örlög vor allra eru á hendi sama, kærleiksríka föður. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 129).
Sama má segja varðandi ómetanlegt líknarverk mannvinarins systur Móður Theresu, þar sem hún starfaði í kristinni líknarreglu nær allt sitt líf og sinnti og líknaða sínum minnsta meðbróður og systur, á Indlandi. Fleiri líknarverk mannvina má nefna, eins og kristinna líknarreglna Klaustra, og má þar ekki síst minnast, frá 19. öld, mannvinarins systur Önnu Maríu, sem hefur sömu lífshugsjón og Albert Schweitzer og systir Móðir Theresa, og fl., að miðla sérstaklega hinum sjúku og aðframkomnu, frelsandi og líknandi náð Drottins Jesú Krists, að fyrirmynd Heilagrar Maríu Guðs móður, á bjargtraustum grundvelli konungar konunganna, konungar kærleikans, Drottins Jesú Krists, og gaf Jesú Kristi allt sitt líf, en hún lést langt um aldur fram; göfugra getur það ekki orðið, að miðla sérstaklega hinum sjúku og aðframkomnu, frelsandi og líknandi náð Drottins Jesú Krist, fyrst með fyrirbæn, síðan með beinni líknarþjónustu til handa hinum sjúka.

M.ö.o. segir orðrétt, í Ævisögu Alberts Schweitzers [samatekt af ofangreindu]:

,,... . En ríkisvald gerir aldrei neitt nema hugarfar almennings sé á bakvið. Og ríkin leysa aldrei það mannúðarhlutverk, sem hér kallar að. (Sigurbjörn Einasrsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 178).
Ríkin verða að hjálpa til þessarrar líknarþjónustu; [nýlenduríkin verða að hjálpa til þess að bæta fyrir syndir fyrri tíma. (Sigurbjörn Einasrsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 178).
Hér verður að koma meira til bæði varðandi mannfélag vort sem og fjarlægari mannfélög. Hér verður í senn að einhverju leiti, að efla sjálfboðastarfsemi bæði lækna og annarra, bæði nær sem fjær; og kæmi þá e.t.v til greina, að virkja hið ómetanlega starf björgunarsveita, sem bæði starfa hér og landi, og eru tilbúnar að fara til fjarlægari landa. Þá kemur vissulega til greina að virkja stöndug fyrirtæki, sérstaklega til að standa straum af kostnaði þjónustunnar, og þá ekki síst með verðskulduðum skattaívilnunum, fyllilega andstætt þeirri leið, sem hinir svonefndu forræðishyggjuflokkar pólitíska rétttrúnar miskunnarleysins, vilja fara!
Og auðæfaoflætið er hér heldur engin lausn, þar sem sjúklingum yrði mismunað eftir efnahag. Og þar kemur hinn pólitísi rétttrúnaður miskunnarleysins, því miður ekki síður fram. Hvorugt gengur upp, a.m.k. ekki í mannfélagi, sem vill teljast til kristins og siðaðs mannfélags.
Hversu illa fara t.d. Afríkuríki, út úr kreppunni, þega skorið er á siðlausan og siðblindan hátt, með markvissum vilja miskunnarleysins, einkum til heilbrigðis- og annarra björgunar og löggæslustarfa sem og menntunnar, einkum barna, í hinum svo nefnda vestræna heimi? Og land vort er ekki lengur undanskilið miskunnarleysi guðlausrar grimmdar hins pólitíska rétttrúnaðar forræðishyggjunnar sem og auðæfaoflætisins. Siðblindan er algjör.
Og almenningur, einkum í hinum svonefndu þróuðu ríkjum, þ.m.t. hér á landi, verður að gera upp við sig, hvort hann vilji varðveita og efla þá ómetanlegu þjónustu líknar, björgunar og mannúðar, og þá einkum varðandi heilbrigðis- og líknarþjónustuna, sem þegar hefur verið byggð upp og varðveitt sem einn dýrsti arfur kristinnar kærleikstrúar og siðar aldanna. Er ekki kominn tími til, að virða og meta hin göfugu störf miskunnar, líknar og björgunar, að verðleikum. Og þótt ekki væri síst barnanna vegna?
En hér má ekki láta staðar numið, þótt vér megum heldur aldrei gleyma því, að líta oss næst, þar sem oss hættir til þess að leita langt yfir skammt, eins og Schweitzer áréttar einnig. (Sigurbjörn Einasrsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 272). Enn á ný fara þróunarlöndin verst út úr heimskreppum, og þá ekki síst nýlendur og fyrrverandi nýlendur, ekki síst í Afríku. Og enn ein skömm núverandi stjórnvalda hins pólitíska rétttrúnaðar miskunnarleysisins, er einnig siðlaus niðurskurður til lífsnauðsynlegrar þróunaraðstoðar. Hér sannast enn og aftur, að lítið er að treysta stjórnvöldum, og þótt þau legðu á mannsæmandi hátt til þessarra mála, af góðum huga, myndi það aldrei duga til varðandi hina lífsnauðsynlegu þörf, þótt þeim beri hins vegar skylda til að gera allt, sem í þeirra valdi stendur, í umboði almennings, nær sem fjær.

Orðrétt segir Albert Schweitzer, sem á ekki síður við í dag, en 5. og 6. áratug sl. aldar:

,,Sá, sem notið hefur læknishjálpar og verið með því móti bjargað úr þungbærum veikindum, verður að stuðla að því, að þeir, sem ekki geta náð til neins læknis, fái hjálp, eins og hann hlaut hjálp.
Hver, sem bjargað var frá þrautum eða dauða með uppskurði, verður að stuðla að því, að líknsöm deyfilyf og læknishnífur megi komast í notkun þar, sem þrautir og dauði ríkja enn skefjalaust.
Móðirin, sem á það læknishjálp að þakka, að barnið hennar er ennþá hjá henni og ekki í kaldri mold, verður að minnast þeirrar vesalings móður, sem getur ekki náð til neins læknis, og stuðla að því, að sú móðir megi hljóta sömu harmagrið.
Þeir, sem hafa verið vitni að helstríði, sem varð mildilegt vegna þess að læknishjálpar naut, en hefði orðið hræðilegt að öðrum kosti, verður að hjálpa til þess, að aðrir geti öðlast sömu huggun með harmi eftir ástvini sína.
Þetta er bræðlalag þeirra, er þrautir reyndu. Þeim ber að hefja mannúðarstarfið í nýlendunum. Það á að hefjast af þakkarfórnum þeirra. Sem sendimenn þeirra skyldu læknar fara til þess að vinna það, sem vinna þarf í nafni mannkærleikans meðal þjáðra manna í fjarlægð.
Fyrr eða síðar mun þær hugsanir, sem ég læt hér í ljós, sigra heiminn, vegna þess að ósveigjanleg rökvísi þeirra hlýtur að sigra bæði höfuð og hjarta.
En er tímabært að flytja heiminum þessar hugsanir einmitt nú? Evrópa er í rústum og eymdin ríkir þar. Verkefnin eru ærin á næstu grösum. Ráðum vér við að sinna því, sem fjær er?
Sannleikurinn er engri stundu bundinn. Hans tími er ævinlega og einkum þá, er hann virðist hvað ótímabærastur. Áhyggjur vegna nálægra meina og fjarlægra fara vel saman, ef þær endast til þess að vekja menn af hugsunarleysi og kalla nýjan mannúðaranda til lífs. (Sigurbjörn Einasrsson /Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 179).

Heimskreppan í dag, bliknar í samanburði við þá eymd, sem ríkti í Evrópu að lokinni seinni hemsstyrjöldinni, þegar Evrópa var í rústum. Þess meiri skömm er það sinnuleysi og skeytingarleysi hins siðblinda tíðaranda hins pólitíska rétttrúnaðar forræðishyggjunnar og/eða siðblinds auðæafaoflætis, sem leiða bæði til takmarkalauss skeytingar- og miskunnarleysis, hvort sem er hér á landi, eða annars staðar, sem eyrir engu, en setur líf fjölda sjúklinga, þ.m.t. veikra barna, nær sem fjær, í bráða lífshættu! Hafi þeir skömm fyrir, þeir oflátungar, sem ekki telja lengur þörf fyrir þeirri mannúð og líkn, sem eru einn af dýrmætustu ávöxtum og arfleifð kristinnar kærleikstrúar og siðar aldanna, sem jafnframt er í órofa samhengi við kristniboðsskipunina!
Þó eru góðu fréttirnar þær, sem koma eins og ljós í myrkrinu, að sjúkrahús Alberts Schweitzers, í Lambarene, í Mið-Afríku, er enn starfrækt, og líknarstarfsemi þess kostuð með frjálsum framlögum. Fleiri líknarstofnanir Alberts Schweitzers, eru enn starfræktar um víða veröld, fyrir utan hin óbeinu áhrif, sem hans einstæða lífsköllunarverk hefur haft, einnig um víða veröld. E.t.v. verða sjúkrahús í framtíðinni, e.t.v. kostuð í auknum mæli með frjáslum framlögum, nær sem fjær, en vissulega með þeirri skýru kröfu kristinnar kærleikstrúar aldanna sem og markvists kristniboðs, að allir hafi aðgang að líknar- og heilbrigðisþjónustunni, fyllilega óháð efnahag; annað er fordæmanlegt!

Því miður er bæði fyrrverandi og núverandi ríkisstjórn sek í ofangreinum málum siðlauss niðurskurðar, ekki síst báðir hæstvirtir fjármálaráðherrar, varðandi takmarkalausan og siðblindan niðurskurð til lífsnauðsynlegra starfa, einkum líknar- og heilbrigðisþjónustunnar, og fleiri lífsnauðsynleg störf löggæslu, björgunar, uppeldis- og menntunnar, einkum gagnavart saklausum börnunum sem og lífsnauðsynlegrar þróunarhjálpar, að undanskyldum tveimur fyrrverandi heilbrigðisráðherrum, og núverandi dóms- og kirkjumálaráðherra, sem gerðu og hafa gert, hins vegar allt, sem í þeirra valdi hefur staðið, til að bjarga því sem bjargað yrði. En, eins og fyrr segir, gerir ríkisvald aldrei neitt, nema hugarfar almennings sé á bakvið, eins og mannvinurinn og kristniboðslæknirinn Albert Schweitzer, nefnir réttilega. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 178). Hér erum vér öll samsek að vissu leyti, ef vér látum möglunarlaust, siðblindar stjórnarákvarðanir viðgangast. Þar utan, þarf meira að koma til, og hefur svo sannarlega gert það, í söfnunum og landssöfnunum, einkum til líknarmála. Þá leið verður að virkja á enn markvissari hátt, bæði nær sem fjær. Og gleymum ekki, að hér er órjúfjanlegt samhengi milli varðveislu kristinnar kærleikstrúar aldanna sem og markvisst kristniboðs, varðandi kristilega hjálparstarfsemi. Hins vegar megum vér samt aldrei gleyma miskunnsama Samverjanum, þar sem Drottinn Jesús Kristur, konungur konunganna, konungur kærleikans, leggur mikla áherslu á góðvild og kærleika hans, hverrar trúar sem hann er, eða jafnvel þótt hann teldist, eða telji sjálfan sig til ,,trúleysingja". Guði eru allir vegir færir, og velviljaðir einstaklingar, hvaða skoðun sem þeir kunna að hafa hafa, hafa margir hverjir unnið mikil og góð líknarverk; eitt er víst, að Guð hefur fyrir góðvilja þeirra, starfað í þeim, jafnvel án þess að þeir hafi vitneskju um það; best væri hins vegar að hafa vitneskju um það.

Hér megum vér aldrei gleyma neinum vorra minnstu meðbræðra og systra, nær sem fjær, hvort sem er í voru landi, innan Evrópu, t.d. í Lettlandi og Grikklandi, eða utan, þ.m.t. ekki síst í Afríku, Asíu, Haiti, og víðar. Og hér hafa svo sannarlega kristniboðarnir, bæði fyrr og nú, bæði hér á landi sem annars staðar, ætíð séð þess kristilegu skyldu sína, með þann fjársjóð að leiðarljósi, sem mölur og ryð, fær aldrei grandað, grundvallað á konungi konunganna, konungi kærleikans, Drottni Jesú Kristi!

Og skynsamlegar tillögur stjórnarandstöðunnar og annarra skynsamra og ábyrgra einstaklinga mannfélagsins, eins og það að skattleggja inngreiðslu lífeyrissjóða; ekki afturvirkt, til að afla ríkissjóði lífnauðsynlegra tekna; - og það á þessum erfiðu tímum heimskreppunnar, og hins svonefnda hruns, vegna þess að byggt hafði verið allt of mikið á auðæfaoflætinu, fjársjóði, sem mölur og ryð fær eytt; - er virt að vettugi, en í staðinn eru lagðir á þjóðina stórauknar skattaálögur, sem einkum eru íþyngjandi fyrir heimilin í landinu, sem mörg hver blæða, enda lítið sem ekkert verið gert til að huga að hag heimilanna í landinu, þ.e. hjá hinum almenna borgara! Afleiðingin verður enn meiri landsflótti, einkum meðal ungs fólks!

Hinn miskunnarlausi tíðarandi nútímans, sem að sönnu gætir ekki aðeins hér á landi, heldur einnig víða, einkum um hinn vetsræna heim, einkum þar sem afhelguð forræðishyggjustjórnvöld hefur náð völdum, og/eða afhelgið auðæfaoflætisstjórn, gefur lítið fyrir hin kristilegu siðferðisgildi mannúðar í mannfélaginu, hvað þá, að slá skjaldborg um þau gildi, hvort sem er um að ræða heimilið, sem verður alltaf hyrningarsteinn kristins siðaðs mannfélags, eða þá heilbrigðis- og líknarþjónustu, sem til þessa, hefur talist ein af hyrnigarsteinum kristins siðaðs mannfélags, og er ein af dýrmætustu ávöxtum og arfleifð kristinnar kærleikstrúar og siðar aldanna, sem sagan hefur sannað, öld af öld, og enn þann dag í dag.

Milljörðum króna er eytt í óljósar aðildarviðræður varðandi hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu, ESB., og það án nokkurrar vissu um það, hvort meiri hluti almennings velji slíkan valkost. Tímasetningin er einnig fráleit, þegar um er að ræða eina mestu heimskreppu sögunnar. Hér er bruðlað með skattfé borgaranna, sem nær hefði verið nýtt með skynsömum og mannúðlegum hætti, til að slá skjaldborg um heimilin sem og lífsnauðsynlega líknar- og heilbrigðisþjónustu sem og aðra lífsnauðsynlega þjónustu, sem varða ekki síst almannavarnir, auk annarrar velferðarþjónustu sem og menntunar.

III NIÐURLAG:

Guð gefi, að sú siðblinda, sem fylgt hefur miskunnarlausum tíðaranda sinnuleysisins, skeytingarleysinsins og heimskunnar, heyri brátt sögunni til, og ofangreind grundvallarhugsjón kristinnar kærleikstrúar og siðar aldanna, sem kemur ekki síst fram í ofangreindum orðum og hugsunum mannvinarins og kristniboðslæknisins, Alberts Schweitzrs, einkum þar sem hann ræðir um, að fyrr eða síðar muni þær hugsanir, sem hann láti hér í ljós, - hinar kristilegu mannúðarhugsjónir - sigra heiminn, vegna þess að ósveigjanleg rökvísi þeirra hljóti að sigra bæði höfuð og hjarta. (Sigurbjörn Einasrsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 179).

Guð gefi svo sannarlega, að svo megi verða, áður en sá banvæni faraldur, sem er óhjákvæmilegur ávöxtur og arfleifð hins pólitíska rétttrúnaðar miskunnarleysisins, hvort sem hann birtist í mynd forræðishyggjunnar eða auðæfaoflætisins, kosti mannslíf eins vorra minnstu meðbræðra eða systra, nær sem fjær.

Guð gefi einnig, að við taki ábyrgar landsstjórnir, sem leiti ávallt handleiðslu Drottins í öllum sínum verkum, með hina kristnu kærleikstrú og sið aldanna, að leiðarljósi, bæði hér á landi sem annars staðar, og þá á ég við í raun, raunverulega ábyrgar ríkisstjórnir, sem í senn hafni sandi siðblinds tíðaranda forræðishyggjunnar sem og auðæfaoflætisins, sem leiðir í senn af sér sinnuleysi, skeytingarleysi og miskunnarleysi, sem bitnar harðast á saklausum meðbræðrum vorum og systrum, nær sem fjær, en hafi þvert á móti fyrrnefnd grundvallargildi reglufestu, skynsemi, virðingar, réttlætis, miskunnar og líknar, að leiðarljósi, í fullvalda lýðræðislegu mannfélagi, sem vissulega getur aldrei orðið fullkomið hérna megin grafar, þar sem vér getum heilshugar, senn í auðmýkt, og þakklæti, en auðmýkt hefur hins vegar ekkert með undirlægjuhátt að gera, tekið heilshugar undir með séra Matthíasi Jochumssyni, ekki síst í seinna versi Þjóðsöngs lands vors, þar sem vér gerum oss jafnframt grein fyrir því, að vort eiginlegt föðurland er á himnum, þar sem engin landamæri eru, engin sorg, sjúkdómar, stríð, né nokkuð annað böl né þrenging, eru framar til, í alkærleikanum heima hjá Guði Föður vorum, við hlið Lambsins, konungar konunganna, konungar kærleikans, Drottins Jesú Krists, Frelsara vors og Endurlausnara, í einingu Heilags Anda, þar sem verða endurfundir ástvina og vina:

Ó, Guð vors lands, ó, lands vors Guð,
vér lifum sem blaktandi, blaktandi strá,
vér deyjum, ef þú ert ei ljós það og líf,
sem að lyftir oss duftinu frá.
Ó, vertu hvern morgun vort ljúfasta líf,
vor leiðtogi‘ í daganna þraut,
og á kvöldin vor himneska hvíld og vor hlíf,
og vor hertogi‘ á þjóðlífsins braut.
:,: Íslands þúsund ár, :,:
verði gróandi þjóðlíf með þverrandi tár,
sem þroskast á Guðs ríkis braut.

Sb. 1945 – Matthías Jochumsson. (Sálmabók, 1972, bls. 501).

Þessi orð mannvinarians og kristniboðslæknisins, Alberts Schweitzers, segja allt, sem segja þarf, og varðar eilífgildan sannleika allra tíma:

,,Gleiðgosaleg oftrú á ytri getu, samfara vantrú á andleg verðmæti - þetta er eitt af einkennum og meinsemdum samtíðarinnar.
Trúin á hið ótrúlega þarf að vakna og glæðast aftur ..., ... trúin á mildina, miskunnsemina, hógværðina, ástúðina, hjartahreinleikann - þetta allt, sem Jesús talar um sem sjálfsagða hluti, en yfirleitt er hlustað á nú sem meinlitlar en barnalegar fjarstæður.“ (Sigurbjörn Einasrsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 272).

Ég enda með sömu lykilorðum mannvinarins og kristniboðslæknisins, Alberts Schweitzers, og ég vitnaði til hér að framan:

,,Framtíð mannkyns veltur á því, að sérhver maður, hvert sem starf hans er, leitist við að sýna, hvað sönn mennska er. Það sem menn láta ógjört í þessu efni, er vanræksla, en ekki örlög. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 274).

Reykjavík, 18. apríl 2010.

Með óskum um Guðs blessun,
Ólafur Þórisson, cand. theol.

Höfundur er með embættispróf í guðfræði, og er með rétt til embættisgengis til prestsþjónustu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Þórisson

Höfundur

Ólafur Þórisson
Ólafur Þórisson
Höfundur er með embættispróf í guðfræði frá HÍ., og er með rétt til embættisgengis til prestsþjónustu
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband