2.10.2009 | 00:55
GRUNDVALLARATRIÐI VARÐANDI GUÐFRÆÐI ALBERTS SCHWEITSERS, EINKUM Í RITI HANS UM ÆVISÖGUR JESÚ: [ENDURBÆTT DRÖG]
GRUNDVALLARATRIÐI VARÐANDI GUÐFRÆÐI ALBERTS SCHWEITSERS, EINKUM Í RITI HANS UM ÆVISÖGUR JESÚ: [Endurbætt drög]
Í ævisögu mannvinarins og kristniboðslæknisins Alberts Schweitzers, sem kom út á Íslensku 1955, segir m.a. orðrétt:
,,Mesta verk hans (Schweitzers*) á þessum árum (upp úr aldamótunum 1900*) er bók hans um ævisögur Jesú. Þar rekur hann það, sem fræðimenn höfðu um háfrar annarrar aldar skeið ritað um lífssögu Jesú og gagnrýnir niðurstöður þeirra. Fyrir þessa bók (hún kom út í fyrstu útgáfu 1906) varð Schweitzer kunnastur sem fræðimaður. Hún flutti margar fersklegar, snjallar og tímabærar athuganir, og sem sögulegt yfirlitsverk er hún sístæð.
Schweitzer miðar við þá aðalreglu, að ummæli og framkoma Jesú verði að skoðast í ljósi kunnra, gyðinglegra meginhugmynda. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, ævisaga, bls. 35-36; áherlsubreyting, *: ÓÞ). Það kemur skýrt fram hjá Schweitzer, að meginreglan, bæði varðandi ummæli og framkomu og þar með verk Jesú, verði að skoðast í þessu ljósi kunnuglegra, gyðinglegra meginhugmynda, og þá ekki síst í samhengi seinni gyðinglegra heimsslitakenningar, og þá í trausti tilkomu konungsríkis eða konungsdóms hins fyrirheitna Messíasar. (Albert Schweitzer, 1954, The Quest of the Historical Jesus, bls. V, ({VI}); Albert Schweitzer, 1935, My Life and Thougt, bls.51, 69 {og víðar}; Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 36. Áherslubreyting: ÓÞ). Lykilatriði hér, tengjast fyrst og fremst Nýja testamentinu: Guðfræði Nýja testamentisins, og þar með nýjatestamentisfræðumum, en með bakgrunn í Gamla testamentinu: Guðfræði Gamla testamentisins, og þar með gamlatestamentisfræðunum. [Ræða hér nánar í þessum kafla rekja einnig nánar - og rökræða, eins og þarf]! -
Höfuðspurningin er þessi, þegar reynt er að brjóta guðspjöllin til mergjar: ,,Hvernig skildi Jesús sjálfan sig, persónu sína og ætlunarverk? Schweitzer segir: Frá skírnarstundu sinni er Jesús sannfærður um, að hann sé hinn fyrirheitni Messías: Guðs himneska ríki er að koma, hin jarðneska tilvera er að renna sitt skeið á enda, guðleg tilvera tekur bráðum við. Og hann er konungur þeirrar tilveru, Mannssonurinn, sem Daníel spámaður sá í sýn (Dan. 7). Þetta er leyndarmál hans með Guði. Mennirnir sjá það ekki eða skilja. Dýrð hans opinberast kærisveinum hans í svip, þegar hann ummyndast á fjallinu, Pétur játar, að hann sé Kristur, sonur hins lifanda Guðs, en Jesús bannar þeim að segja frá þessu. Það á ekki að vitnast fyrr en Guð opinberar það. Þangað til er hann í lægingarmynd meðal mannanna, þrátt fyrir þau tákn, sem hann geerir. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 36).
Schweitzer segir þetta vera lykilinn að huga og lífssögu Jesú. Þegar Jesús er sannfærður um að hann væri hinn fyrirheitni Messísas, þá verða Matteusar- og Markúsarguðspjall, elstu guðspjöllin, augljós sem og öll saga frumkristninnnar. Þegar guðspjöllin eru skoðuð í þessu ljósi, verður ályktunin sú, að þau eru mjög öruggar heimildir og nákvæm lýsing á stuttum starfstíma Jesú og dauða hans. Jesús boðar að endalok þessa heims sé framundan, og að Guðs ríki sé í nánd, með hugtökum, sem samtíð hans þekkti. Jesús boðar afgerandi og umbyltandi siðgæðislærdóm. Sá heyrir til Guði og Ríki hans, sem lýtur boðorði kærleikans. Þeir, sem eru fátækir í anda, miskunnsamir, friðflytjendur, hjatrahreinir, og hungrar og þyrstir eftir réttlæti Ríkis Guðs, ásamt þeim, er þola þjáningar og ofsóknkir, og þeir, sem vilja verða eins og börn. ... . Jesús sendir lærisveina sína til þess að boða komu Guðs ríkisins og væntir sjálfur komu þess á hverri stundu. Jesús sannfærist síðan um að Hann eigi að deyja, ,,fórna lífi sínu til friðþægingar fyrir þá, sem kallaðir voru til hins komanda ríkis. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls.36-37; áherslubreyting: ÓÞ). Þetta samræmist við ummæli Jesaja, 53. kapítula og víðar, um þjón Guðs, sem líður fyrir syndir annarra og heimfærir Jesús þessi ummæli til sín. Hér er um að ræða spádóm um Hann, opinberun um hlutverk Hans.
Jesús trúir lærisveinum sínum einslega fyrir því, að sér beri að fara upp til Jerúsalem, til þess að líða þar og deyja. Hann fer til Jerúsalem um páskaleitið, ásamt hópi hátíðargesta. Júdas svíkur Jesú, með því að segja andlegu yfirvöldunum þar, að Jesús telji sig vera Messías. Við síðustu kvöldmáltíðina, þar sem Jesús gefur lærisveinum sínum brauð og vín, sem Hann hefur blessað, vígir Hann lærisveina sína il þess að sirja til borðs með sér í Dýrðarríkinu. Því næst fer Hann út til þess að biðjast fyrir, í Getsemanegerðinum, ásamt lærisveinum sínum. Hann vonar að Guð afstýrði hinni ægilegu raun, léti bikarinn fara fram hjá, en er samt fús til að drekka hann, ef Guð vill. Hann biður til Guðs fyrir sjálfum sér, en hugsar eingöngu um lærisveina sína og hefur aðeins áhyggjur af þeim, sem standa Honum næst, vegna þess, að Hann veit ekki , hvað Guð ætlast fyrir með þá og biður þá þess vegna að vera hjá sér. Síðan er Jesús dæmdur fyrir guðlast, því Hann sagðist vera Messías. Jesús gengur fúslega í dauðann, í þeirri fullvissu, að með því sé Hann að ryðja Guðsríkinu braut. Lærisveinar Hans eru gagnteknir af eftirvæntingu, eftir opinberun hans. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 37-38). ,,Þá efast þeir ekki um, að hann sé upphafinn til Guðs í himnunum og að hann muni innan skamms birtast sem Messías og stofnsetja ríki sitt. Lifandi eftirvænting eftir endurkomu hans mótar frumkristnina. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 38).
Guðfræðilegar kenningar og athuganir Schweitzers, brutu í bága við ríkjandi guðfræðikenningar um aldamótin 1900, og hægt er að draga þær ályktanir, að Schweitzer hafi með þeim, haft afgerandi áhrif á nýjatestamentisfræðina, og vísað veg út úr nokkurskonar blindgötu, sem nýjatestamentisfræðin voru komin í. Óhætt er að segja, að forsendur Schweitzers hafi leyst margt, sem áður virtist illskiljanlegt, og gerðu m.a. þróun frumkristninnar skiljanlegri, og brúuðu m.a. það djúp, sem margir töldu hafa verið á milli Jesú og Páls postula. Þann þátt guðfræðinnar ræðir Schweitzer ýtarlega í guðfræðiriti sínu um Pál postula. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 38; áherslubreyting: ÓÞ).
Hin hispurlausa og raunsæja túlkun Schweitzers, og annarra, sem héldu svipuðu fram, um svipað leiti, þótti mörgum umdeild. ... . Óhætt er að segja að nýja guðfræðin hafi gert Jesú nýtískulegan og smábrotnari, en Hann er. ,,Jesús veruleikans verður aldrei eins meðfærilegur og sú guðfræði taldi. Hann er svo sérstæður, bæði hugsun hans og athafnir, að það verður alltaf eitthvað annarlegt og leyndardómsfullt við hann. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 39).
Rannsóknir á Ævi Jesú miðuðu að því að finna Jesúm sögunnar. Þessar rannsóknir hafa lotið merkilegum örlögum. Menn trúðu því að unnt væri að leiða Hann sem fræðara og frelsara inn í samtíð vora, eins og Hann væri í raun og veru. En nýju guðfræðinni tókst ekki að halda Honum við vora tíma; vonast hafði verið, að maðurinn Jesús yrði aftur lifandi og kæmi nú til móts við yfirstandandi tíma. En Hann gekk fram hjá vorum tímum, og sneri aftur til síns eigin tíma, og nýja guðfræðin gat með engu móti haldið Honum föstum í samtíð vorri, heldur varð að láta Hann fara aftur sömu leið. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 39-40). ,,Hann hvarf aftur til sinnar samtíðar rétt eins eðlilega og pendúllinn hverfur til upprunastöðu, þegar honum er sleppt. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 40). .
Schweitzer segir, að margir kynnu að spyrja, hvort Jesús ætti í rauninni nokkurt erindi við vora tíma, og svarar á þann hátt, að sá, sem horfi óhikað í augu við Jesúm veruleikans, og hlusti á það, sem Hann hefur að flytja honum í sínum máttarmiklu orðum, komist í kynni við persónu, sem vill ná völdum yfir honum. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 40).
Og í niðurlagsorðum Alberts Schweitzers, í riti sínu um Ævisögur Jesú, segir orðrétt:
,,Hann kemur til vor eins og ókunnugur nafnlaus gestur, á sama hátt og Hann kom forðum við bakka vatnisins, Hann kom til þessarra manna, sem ekki vissu hver Hann var. Hann segir sömu orðin: ,,Fylg þú mér! Og Hann bendir oss á þau verkefni, sem Hann þarf að leysa á vorum tímum. Hann skipar fyrir. Og þeim, sem hlýða Honum, hvort sem þeir eru vitrir eða fávísir, mun Hann opinbera sjálfan sig í því, sem þeir fá að reyna í samfélagi Hans af erfiðleikum, átökum, og þrautum og þjáningum, og sem ósegjanlegan leyndardóm munu þeir læra og komast sjálfir að raun um Hver Hann er. (Albert Schweitzer, 1954, The Quest of the Historical Jesus, bls. 401, áherslubreyting: ÓÞ).
Orðrétt segir síðan í Ævisögu Alberts Schweitzers, (á Íslensku):
,,Þetta eru ályktunarorð Schweitzers, þegar hann er að ljúka bók sinni um ævisögur Jesú.
Með þeirri bók hafði hann lagt drjúgan skerf til trúvísindanna og brugðið nýju ljósi yfir ýmsa þætti hinnar einsteiðu lífssögu.
En framtíðin mun fyrst og fremst minnast Alberts Schweitzers fyrir það, hvernig hann hefur sýnt, hvað það er að skilja vilja Krists og fylgja honum. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 41; áherslubreyting: ÓÞ). ... . Eitt grundvallaratriða í guðfræði Schweitzers, sem skýrt kemur fram í Ævisögum Hans um Jesú, er einmitt það, að skilja Jesú, ,,er að skilja, hvað hann vill og villja það. Hin rétta afstaða til hans er að vera höndlaður af honum. Kristin guðrækni hefur gildi að sama skapi sem hún felur í sér hollustu viljans við hans vilja. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 40, áherslubreyting: ÓÞ).
Jesús krefst þess eins af mönnum, ,,að þeir sýndu það í verki og fórn, að hann hefði umbreytt þeim, knúið þá til að verða öðruvísi en heimurinn, og að þeir hefðu þar með öðlazt hlutdeild í friði hans. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 40; áherslubreyting: ÓÞ). Þegar Jesús nefnir sig Messías, Mannssoninn, Guðs son, ,,þá er hann með því að láta í ljós, að hann lítur á sig sem valdbjóðanda og drottnara. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 41; áherslubreyting: ÓÞ).
Þessi niðurlagsorð Alberts Schweitzers, í riti sínu um Ævisögur Jesú, og lykilorð í lokin sem og ofangreint (samantekt v. guðfræði Alberts Schweitzers), eru lykilatriði og lykilorð varðandi einstaka lífsköllun mannvinar - Alberts Schweitzers, einkum í riti hans um Ævisögur Jesú, í ljósi lífsköllunarstarfs hans sem kristniboðslæknis í Afríku, í rúma hálfa öld, í sjúkrahúsi, sem hann reisti sjálfur, vissulega með aðstoð góðs fólks, ekki síst eiginkonu sinnar.
Nánari áhersla á samantekt varðandi guðfræði Alberts Schweitzers, í ljósi lífsköllunar hans sem kristniboðslæknis:
Mannvinurinn og kristniboðslæknirinn Albert Scheitzer, fylgdi efir þeirri köllun, að fylgja Jesú Kristi á þann hátt, að gefa Honum allt sitt líf, í sínu óeigingjarna lífsstarfi sem kristniboðslæknir í Afríku, í rúma hálfa öld. Byggist sú afstaða ekki síst á hinni kristnu kærleikstrú hans, sem kemur sérstaklega fram í niðurlagsorðum hnas í guðfræðiriti sínu, um Ævisögur Jesú, þar sem kemur skýrt fram, að Jesús kallar oss enn til fylgdar við sig sem forðum daga, skipar oss fyrir, og bendir oss á þau verkefni, sem þarf að leysa á vorum tímum. Og þeir, sem hlýða Honum, mun Hann opinbera sig, og sem ósegjanlegan leyndardóm mun þeir sjálfir komast að raun um, hver Hann er. (Albert Scheitzers, 1954, The Quest of the Historikal Jesús, bls. 401; Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævísaga, bls. 41). Grundvöllurinn er Jesús Kristur, sem kallar og skipar. Þessi kristna lífshugsjón Scheitzers, er að mínu mati, í órofa samhengi, við kristniboðsskipunina og þar með kristniboðið/allt kristniboð sem og það, hvernig Jesús, bæði læknaði sjúka, og endurleysti til lifandi trúar á Hann sem og fyrirmælum Jesú til lærisveinanna, að lækna sjúka, og boða þeim það fagnaðarerindi, að Guðsríki er í nánd. Tengist þetta jafnframt grundvallarhugmyndum Schweitzers, að Jesús og frumkristnin, væntu komandi heimsslita, og að Guðleg tilvera tæki við, og Jesús væri hinn fyrirheitni Messías, byggðist verulega á síðari gyðinglegri/um heimsslitakenninguu/m, að Guðs ríki væri í nánd, sem byggðist þar á hinum fyrirheitni Messíasi. (Albert Scheitzers, 1954, The Quest of the Historikal Jesús, bls. V (ogVI); Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævísaga,, bls. 36-39. Þá áréttar Schweitzer enn endurkomu Krists, þar sem kemur fram skipun Jesú til lærisveina sinna, að sinna sínum minnstu meðbræðrum og systrum, þmt. sjúkum, föngum o.s.frv. (Albert Scheitzers, 1954, The Quest of the Historikal Jesús, bls. VI). ,,Öll lifandi þekking á Guði er fólgin í því, að vér lifum hann sem kæleiksvilja í hjörtum vorum. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævísaga, bls. 270). Allt sem skiptir máli er viljinn, vonin og trúin. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævísaga, bls. 271).
Guðfræðikenningar Schweitzers, brutu í bága við ríkjandi fræðikenningar um aldamótin 1900, sem fyrr er getið. ... . Og þá má álykta, að Schweitzer hafi, með kenningum sínum, vísað veg út úr nokkurs konar blindgötu, sem nýjatestamenntafæðin voru komin í. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 38; áherslubreyting: ÓÞ). [{... . (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 38, og víðar; vísað einnig í fl. rit, einkum eftir Schweitzer sjálfan!}]. [{,,Schweitzer markaði spor, hans verður alla tíð getið í sögu guðfræðinnar. ... . (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 38 og víðar; fleiri rit koma fastlega til greina, einkum eftir Schweitzer sjálfan}].
[Lýsa áfram, eins og þurfa þykir. ............]. (Albert Schweitzer, 1954, The Quest of yth Historical Jesus, bls. V-VI, 401, og víðar, eins og við á; Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 38-40,41, og víðar, eins og við á). [Fleiri rit koma vissulega til greina, og þá ekki síst rit Schweitzers sjálfs, eins og Sjálfsævisöga hans á Þýsku, þýdd á Ensku: Albert Schweitzer, 1935, My Life and Thought An Autobiography, einkum bls. 45-75, og víðar, eins og við á; auk fleiri rita].
[Kristniboðið grundvallaratriði (rauður þráður), bæði varðandi guðfræði Alberts Schweitzers sem og (sérstaklega) varðandi köllunarstarf hans sem kristniboðslæknis! Lagt fyrir sem tilgáta, í inngangskafla, ræða og rökstyðja hér í 3. kafla, (sjá nánar hér að framan, 3-1), og ályktun/ályktanir dregnar síðan betur saman í niðurlagskafla].
[Koma með ályktanir, eftir ýtarlegar athuganir, sem verða rökræddar hér í 3. kafla, (sbr. í 3-1, hér að framan), sem dregnar verða síðan betur saman í niðurlagskafla: ............].
Kristniboðið er grundvallaratriði (rauður þráður), sem fyrr er getið, bæði varðandi guðfræði Alberts Schweitzers sem og (sérstaklega) varðandi köllunarstarf hans sem kristniboðslæknis í Lambarene við Ógówefljót, í Frönsku Miðbaugs-Afríku (A. E. F.), þar sem hann reisti sjúkrahús árið 1913, og starfaði þar sem kristniboðslæknir í rúma hálfa öld, sem sagan sannar einnig, enda starfaði Schweitzer á kristniboðsstöð Franskra Mótmælenda í Lambarene, eða í nágrenni við hana, og hafði náin kynni og samvinnu við kristniboða, bæði Rómverks-Kaþólska og Evangelíska. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 250).
Þannig lýsti Schweitzer kynnum sínum, af kristniboðinu, eftir þriggja ára veru í Lambarene, og fórust m.a. orð á þessa leið: (sbr. einnig í 3-1)
,,Ég ber einlæga lotningu fyrir því starfi, sem amerískir kristniboðar hófu hér og franskir kristniboðar hafa haldið áfram. Þeir hafa mótað hugsun innlendra manna, í mannlegum og kristilegum skilningi, á þann veg, að það myndi sannfæra jafnvel ramma andstæðinga kristniboðs um það, að kenning Jesú megnar mikið gagnvart frumstæðum mönnum. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, 1955, Albert Schweitzer, Ævisaga, bls. 250).
Reykjavík, 2. október, 2009.
Með óskum um Guðs blessun,
Ólafur Þórisson, cand. theol.
Höfundur er með embættispróf í guðfræði frá HÍ., og er með rétt til embættisgengis til prestsþjónustu; og er að vinna að heildstæðu riti og/eða ritgerð um mannvininn og kristniboðslækninn, Albert Schweitzer, ásamt helstu hugsjónum hans.
Flokkur: Trúmál og siðferði | Facebook
Um bloggið
Ólafur Þórisson
Nýjustu færslur
- Nýtt frumvarp Velferðarráðuneytisins gegn ófæddum börnum glæp...
- HUGVEKJA: KRISTIN KÆRLEIKSTRÚ OG MENNINGARARFLEIFÐ ALDANNA:
- SAMRÆMAST FRJÁLSAR FÓSTUREYÐINGAR KRISTINNI KÆRLEIKSTRÚ ALDA...
- HEYRIR FLÓTTAMANNAHJÁLP SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA, NÚ SÖGUNNI TIL?
- MANNVINURINN OG KRISTNIBOÐSLÆKNIRINN ALBERT SCHWEITZER; Í ÁR ...
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.