Opið bréf til núverandi ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, varðandi heilbrigðismál: Að gefnum tilefnum, varðandi fréttir Rúv, og fleiri fjölmiðla, spyr undirritaður óhjákvæmilega núverandi ríksisstjórn, eftirfarandi opinna spurninga:

1. Hvernig ríkisstjórn Framasóknar- og Sjálfstæðisflokks tók við fyrri ríkisstjórn Íslands, eftir kosningarnar vorið 2013, varðandi mikilvæg  og jafnvel lífsnauðsynleg kosningaloforð?

2. Á virkilega að svíkja kosningaloforð um 12-13 milljarða lífsnauðsynlegra fjárframlaga til Landsspítalans, en kosningaloforðið kom skýrt fram í opinni umræðu fyrir kosningarnar sl. vor, og var enn áréttað opinberlega á sumarþingi Alþingis, þar sem sérstaklega var tekið fram, að nauðsynlegt væri, að þjóðarsátt næðist um þetta mál?  

3. Á jafnvel að skera enn frekar niður lífsnauðsynleg fjárframlög til Landspítalans, í væntanlegum fjárlögum (og fjáraukalögum) fyrir árin 2013 - 2014?

4. Og hvað með loforð um lífsnauðsynleg fjárframlög til annarra sjúkrahúsa, og heilbrigðisstofnana, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni?


Í lögfræðiriti Sigurðar Líndal, lagaprófessors, Um lög og lögfræði, varðandi 41. gr. Stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33, 17. júní 1944, segir orðrétt:

  Í 41. gr. stjórnarskrárinnar er gert ráð fyrir fjáraukalögum. Vandi er að sjá nákvæmlega fyrir alla fjárþörf og óvænt úgjöld verða iðulega.  Er þá kostur á að afla heimilda til greiðslna úr ríkissjóði umfram það sem mælt er ífjárlögum.  Fjáraukalög eru lögð framásamt fjárlögum næsta árs, þannig að þar eru fjárlög yfirstandi árs leiðrétt að fenginni reynslu og heimild að nokkru leyti veitt eftir að greiðslur hafa farið fram, en að öðru leyti til að greiða fyrirsjánleg útgjöld.  (Sigurður Líndal, 2002, Um lög og lögfræði, bls. 105).



Með vinsemd og virðingu, og óskum um alla Guðs blessun.
Ólafur Þórisson, cand. theol.



Höfundur er með embættispróf í guðfræði, frá Háskóla Íslands, og lögbundinn rétt til embættisgengis til prestsþjónustu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Þórisson

Höfundur

Ólafur Þórisson
Ólafur Þórisson
Höfundur er með embættispróf í guðfræði frá HÍ., og er með rétt til embættisgengis til prestsþjónustu
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband