Færsluflokkur: Vísindi og fræði

MANNVINURINN OG KRISTNIBOÐSLÆKNIRINN ALBERT SCHWEITZER; Í ÁR ER EIN ÖLD LIÐIN, SÍÐAN HANN REISTI UPPHAFLEGA SJÚKRAHÚS Í AFRÍKU:


I
Mannvinurinn og kristniboðslæknirinn Albert Scheitzer, fylgdi efir þeirri köllun, að fylgja Jesú Kristi á þann hátt, að gefa Honum allt sitt líf. Byggist sú afstaða ekki síst á hinni kristnu kærleikstrú hans, sem kemur sérstaklega fram í niðurlagsorðum hans í guðfræðiriti sínu, um
 Ævisögur Jesú, þar sen kemur skýrt fram, að Jesús kallar oss enn til fylgdar við sig sem forðum daga, skipar oss fyrir, og bendir oss á þau verkefni, sem þarf að leysa á vorum tímum. Og þeir, sem hlýða Honum, mun Hann opinbera sig, og sem ósegjanlegan leyndardóm mun þeir sjálfir komast að raun um, hver Hann er. (Albert Scheitzers, 1954, The Quest of the Historikal Jesús, bls. 401; Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, Albert Schweitzer, ævisaga, bls. 41). 

II
Grundvöllurinn er Jesús Kristur. Þessi kristna lífshugsjón Scheitzers, er í órofa samhengi, við kristniboðsskipunina sem og það, hvernig Jesús, bæði læknaði sjúka, og endurleysti til lifandi trúar á Hann sem og fyrirmælum Jesú til lærisveinanna, að lækna sjúka, og boða þeim það fagnaðarerindi, að Guðsríki er í nánd. Tengist þetta jafnframt grundvallarhugmyndum Schweitzers, að Jesús og frumkristnin, væntu komandi heimsslita, og að Guðleg tilvera tæki við, og Jesús væri hinn fyrirheitni Messías, byggðist verulega á síðari gyðinglegri/um heimsslitakenningu/m, að Guðs ríki væri í nánd, sem byggðist þar á hinum fyrirheitni Messíasi. (Albert Scheitzers, 1954, The Quest of the Historikal Jesús, bls. V (ogVI); Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, Albert Schweitzer, ævisaga, bls. 36-39. Þá má fyllilega túlka í órofa samhengi, í niðurlags orðum Alberts Schweitzers, í bók sinni, skipun Jesú til lærisveina sinna, að sinna sínum minnstu meðbræðrum og systrum, þ.m.t. sjúkum, föngum o.s.frv. (Albert Scheitzers, 1954, The Quest of the Historikal Jesús, bls. VI; áherslubreyting ÓÞ).  ,,Öll lifandi þekking á Guði er fólgin í því, að vér lifum hann sem kæleiksvilja í hjörtum vorum.“ (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, Albert Schweitzer, ævisaga, bls. 270). Allt sem skiptir máli er viljinn, vonin og trúin. (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, Albert Schweitzer, ævisaga, bls. 271).  

 

III
Þá byggist, eða öllu heldur dýpkar, hin kristna kærleikshugsjón Schweitzers, einnig á kristilegu siðferðilegu áliti hans, ,,lotningu fyrir lífinu“, sem kemur fram í kristilegu heimspekiriti hans, Kultur und Ethic (Menning og Siðfræði/Siðferði)   ,,Hugtakið ,,lotning fyrir lífinu“ hefur öll skilyrði, segir Schweitzer, til að vera grundvöllur einfaldrar lífsskoðunar, sem allir geta skilið, en er um leið í samræmi við kröfur rökrænnar hugsunar og samkvæm kærleikskenningu Jesú.“ (Sigurbjgörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, Albert Schweitzer, ævisaga, bls. 268; áherslubreyting:  ÓÞ). 

IV
Þessi djúpa kristilega lífshugsjón dýpkar enn dýpt þeirrar kristilegu lífshugsjónar, sem fram kemur í hinni kristnu kærleikshugsjón Alberts Schweitzer, sem kemur ekki síst fram í guðfræðikenningum hans, einkum fyrrnefndum niðurlagsorðum hans í riti sínu um Ævisögur Jesú, enda fylgdi hann kölluninni algjörlega eftir, með því að reisa sjúkrahús, í Lambarene við Ógówefljót, í Frönsku Miðbaugs-Afríku (A. E. F.), og starfaði þar sem kristniboðslæknir í rúma hálfa öld.  (Sigurbjörn Einarsson/Arnbjörn Kristinsson, Albert Schweitzer, ævisaga,bls. 81, 250).  Albert Schweitzer reisti sjúkrahúsið árið 1913, og í ár eru því 100 ár liðin, frá því hann reisti sjúkrahúsið upphaflega.

 

 


Reykjavík, 10. mars 2012.  Birt upphaflega: 25. mars, 2011.  Birt endurbætt:  11. apríl 2012 og 15. ágúst 2013.

 


Með óskum um alla Guðs blessun

Ólafur Þórisson, cand. theol. 


Höfundur er með embættispróf í guðfræði frá HÍ., og hefur lögbundinn rétt til embættisgengis til prestsþjónustu. 

 

 


NEI VIÐ ICESAVE!!!!

Hvaða fjármálaóreiðumenn er verið að vernda, með hugsanlega ólögmætum hætti, með Icesave samningnum, sem samþykktur var á Alþingi Íslendinga í febrúar sl., og hæstvirtur forseti lýðveldisins Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, tók þá drengilegu ákvörðun, ekki síst á grundvelli undirskrifta- söfnunar mjög fjölmenns hóps Íslendinga, að synja lögunum samþykkis, og vísa málinu til þjóðaratkvæðagreiðslu, annað hvort til samþykkis eða synjunar. Þær ofríkisþjóðir, "fyrrverandi nýlenduþjóðir", sem hika ekki við að beita smáþjóðir ofríki, - sem þær hafa gert gagnvart fjölda smáþjóða í miklum mæli, sem sagan sannar, - yrðu þá óhjákvæmilega, ef einhver lágmarksskynsemi fyrirfinnst á annað borð hjá þeim, að heimta umræddar innistæður af tiltölulega fámennum hópi fjármálaóreiðumanna; hugsanlega er hér annars um ólögmæta háttsemi að ræða, sem vel hugsanlega getur verið skaðabótaskyld.

Ég tek svo sannarlega ofan fyrir hæstvirtum forseta lýðveldisins Íslands, herra Ólafi Ragnari Grímssyni sem og fyrrverandi hæstvirtum forsætisráðherra, Davíð Oddssyni, að svo sannalega á Íslenska þjóðin, alls ekki að þurfa að greiða innistæðuskuldir fjármálaóreiðumanna, sem kom réttiega fram hjá honum í Kastljósi Rúv, haustið 2008.

Hér verður að fá skýra lagalega niðurstöðu, jafnvel þótt málið færi þá fyrir dómstóla; margt myndi þá mjög líklega koma upp á yfirborðið, sem alþjóð hefur enn enga vitneskju um; að byggja málið á hlutdrægum pólitískum grundvelli, er ekkert annað en eins og að byggja á sandi; hér verður að byggja á traustum lagalegum forsendum, samkvæmt meginreglu Íslenskt réttarfars sem og alþjóðaréttar, þar sem byggt er á almennt viðurkenndum réttarreglum - hvort sem er að landsrétti eða alþjóðarétti -, sem eru túlkaðar með almennt viðurkenndri lagalegri aðferð, sem er eitt af því grundvallaratriði Íslenskt réttarfars, sem kennt er í Almennri lögfræði við Lagadeild Háskóla Íslands. Og öll ríkin þrjú, Ísland, Holland og Bretland, eiga víst að teljast til réttarríkja! Annað er að byggja á óskynsamlegu og óljósu pólitísku mati, sem hefur ekkert með lagalega niðurstöðu að ræða; m.ö.o. á pólitískri geðþóttaákvörðun. Hér verður einnig rökrétt skynsemi að vera höfð að leiðarljósi, en alls ekki óskynsamleg geðþóttaákvörðun!

Guð gefi, að kristin kærleikstrú aldanna og siður, megi á nýjan leik gegnsýra Íslenskt mannfélag sem og öll önnur mannfélög!
Guð blessi Ísland og Íslenska þjóð sem og alla aðra bræður vora og systur, nær sem fjær!!

Ég enda á sálmversum séra Matthíasar Jochumssonar:

Upp, þúsund ára þjóð,
með þúsund radda ljóð.
Upp allt, sem er og hrærist,
og allt, sem lífi nærist.
Upp, harpa Guðs, þú heimur.
Upp, haf og landageimur.

Krjúp lágt, þú litla þjóð,
við lífsins náðarflóð.
Eilífum Guði alda
þú átt í dag að gjalda
allt lánsfé lífs þíns stunda
með leigum þúsund punda.

Upp, upp, þú Íslands þjóð
með eldheitt hjartablóð,
Guðs sólu signd er foldin
öll sekt í miskunn goldin:
Þú átt, þú átt að lifa
öll ár og tákn það skrifa.

Kom Jesú Kristí trú,
kom, kom og í oss bú,
kom, sterki kærleikskraftur,
þú kveikir dáið aftur.
Ein trú, eitt ljós, einn andi
í einu fósturlandi.

Guð faðir, lífs vors líf,
þú lands vors eilíf hlíf,
sjá, í þér erum, hrærumst,
og af þér lifum, nærumst,
þú telur minnstu tárin
og tímans þúsund árin.

Matthías Jochumsson

(Sálmabók, 1972, bls. 503 - 504).

Og munum, að umrædd pund, eru ekki veraldlegur fjársjóður eða innistæðureikningar og skuldir, heldur sá fjársjóður, sem mölur og ryð fær aldrei grandað!

Með vinsemd og virðingu og óskum um Guðs blessun!

Ólafur Þórisson, cand. theol.

Höfundur er með embættispróf í Guðfræði frá Háskóla Íslands og er með lögbundinn rétt til embættisgengis til prestsþjónustu.


Um bloggið

Ólafur Þórisson

Höfundur

Ólafur Þórisson
Ólafur Þórisson
Höfundur er með embættispróf í guðfræði frá HÍ., og er með rétt til embættisgengis til prestsþjónustu
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 809

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband